Premium Only Content
Rússagrýlan óspart notuð
Arnar Loftsson er sérfræðingur í málefnum Rússlands. Hann er giftur rússneskri konu og segir Rússland vera sitt annað heimili.
Í viðtalinu ræðir Arnar um þá Rússafóbiu sem ræður ríkjum á Vesturlöndum og spyr hvort Bandaríkjamenn hefðu samþykkt að Rússar staðsettir á Kúbu hefðu stjórnað rússneskum eldflaugaárásum á Bandaríkin? Svarið er augljóst, slíkt hefði aldrei verið liðið. Í Úkraínustríðinu stjórna Bandaríkjamenn eldflaugaárásum á Rússland með bandarískum eldflaugum frá Úkraínu. Það er því til marks um hversu mikla þolinmæði Pútín og Rússlandsstjórn hafa sýnt í Úkraínustríðinu að allt er ekki endanlega komið í bál og brand sem komið er. Úkraínumenn, Zelensky ásamt Biden og Nató hafa reynt allt sem þeir geta til að hrinda af stað þriðju heimsstyrjöldinni en mistekist.
Arnar skýrir frá vopnaútbúnaði Rússlands sem hafa að ráða yfir tortímingarsprengjum og hljóðfráum eldflaugum sem Vesturlönd eiga ekki svar við. Að Zelensky, bandarískir vopnaframleiðendur og ESB halda áfram að stríðsáróðri og stríðsæsingu er vægast sagt fáranlegt. Rússland hefur unnið stríðið en opinberlega er það ekki viðurkennt á Vesturlöndum.
Arnar Loftsson varar við því að staðan núna ef til friðarsamninga kemur er engan vegin sú sama og þegar Minsk-samkomulagið var undirritað. Eftir öll samningasvikin hafa Rússar lært, að það er ekkert að marka Vesturlönd og leiðtoga þeirra. Þeir munu því setja fram auknar kröfur eins og til dæmis að Vesturlönd greiði til baka þá peninga sem þau hafa fryst og stolið af úkraínskum viðskiptaaðilum. Hann segir ESB ekki í neinu ástandi að semja við Rússa og grundvöllur Nató horfinn, þegar einn meðlimur Nató, Bandaríkin, ræðst á og eyðileggur hagsmuni annars Nató-meðlims, Þýskalands. Gerðist það með sprengingu Nord Stream gasleiðslanna frá Rússlandi til Þýskalands.
Arnar segir málið flóknari en svo að Donald Trump nýkjörinn forseti Bandaríkjanna geti komið með eigin kröfur og búist við samningum á innan við sólarhring. Pútín og Rússlandsstjórn vilja semja og ræða við Trump en þá án þess að Zelensky sé með.
Mannfall í Úkraínu er gríðarlega mikið og fjölmiðlar á Vesturlöndum segja ekki satt frá. Hann bar saman upplýsingar yfirvalda í Lýðveldinu Mari-El þar sem hann dvelst lengst á meðan hann er í Rússlandi saman við opinberar tölur rússnesku ríkisstjórnarinnar og sagði tölur ríkisins trúverðugar. Í Rússlandi er talað um færri en 100 þúsund fallna rússneskra hermanna á með tala Úkríunmanna gæti verið ein milljón manns. En tölulegur samanburður á stríðstímum getur verið rangur, því yfirvöld stýra upplýsingaflæðinu.
Viðtalið við Arnar Loftsson er athyglisvert og upplýsingaríkt, hann er einn af fáum Rússlandsvinum sem þora að standa við skoðun sína og hefur þurft að þola mikið mótlæti, hótanir og líkamsárásir fyrir.
-
25:52
Nikko Ortiz
4 days agoI Robbed My Assistant
51.3K11 -
LIVE
Lofi Girl
3 years agolofi hip hop radio 📚 - beats to relax/study to
290 watching -
2:06:00
PandaSub2000
4 days agoDonkey Kong Bananza | ULTRA BEST AT GAMES (Edited Replay)
32.1K1 -
12:58
MetatronGaming
12 days agoAmazing Game Pick ups!
37K3 -
42:33
The Why Files
2 days agoUnexplained Phenomena: The Dead Village, Rain Phenomena, YouTube Mystery
109K32 -
27:54
Man in America
13 hours agoThe Epstein Files Broke Something in Me
89.7K85 -
1:13:56
Inverted World Live
12 hours agoEpstein Was Created to Engineer Reality | Ep. 168
118K15 -
2:39:26
TimcastIRL
10 hours agoIT'S GETTING WORSE | Timcast IRL #1443 ft. Chrissie Mayr & Adam Johnson
226K90 -
2:21:48
Laura Loomer
10 hours agoEP170: MAGA Fights Back Against RINOs Pushing The Dignity Act
50.7K37 -
UPCOMING
Isabella Moody
10 hours agoLIVESTREAM: Topic TBD!
37.2K4