Skaðmenntaða fólkið

25 days ago
1.87K

Eldur Smári Kristinsson er gestur þeirra Írisar Erlingsdóttur og Gústafs Skúlasonar í nýjasta þætti Ísafoldar.

Atburðarásin verður sífellt viðburðaríkari og gerist hraðar út um allan heim. Í Bandaríkjunum var kona skotin til bana sem reyndi að keyra þungum bíl sínum viljandi á lögreglumann bandarísku útlendingastofnunarinnar. Hann skaut í aðþrengdri stöðu sem ógnaði lífi hans og konan dó. Íris Erlingsdóttir á heima nálægt staðnum og lýsti umræðum í Bandaríkjunum um málið. Óeirðaöfl reyna að koma af stað óeirðum vegna málsins og segja að um morð sé að ræða, konan hafi bara verið stödd á staðnum af tilviljun. Annað hefur komið í ljós: Konan var leiðandi í baráttu gegn Útlendingastofnun og hún ásamt fleirum hindruðu meðvitað lögregluna við störf. Eldur Smári segir baráttuna komna út fyrir mörk pólitískrar baráttu, um sé hreinlega að ræða hryðjuverk.

Farið var yfir stöðuna í Íran en fólkið hefur gert uppreisn gegn klerkastjórninni og þegar þátturinn var tekinn upp voru sögusagnir í gangi um að æðstu valdhafar hefðu flúið land.

Í okkar heimshluta vælir skaðmenntaða fólkið yfir Donald Trump og Grænlandi og skilur ekki varnarumræðu Bandaríkjanna. Umræðan hjá fyrrum nýlenduherrum Íslands, Dönum, er í þvílíku skötulíki að rætt er um að fá Þjóðverja og Frakka til að senda heri sína til Grænlands til að verjast hugsanlegri „árás" Bandaríkjamanna.

Valkyrjurnar á Íslandi eru í afturvagni ESB sem og taka þátt í því að sundra bæði Íslendingum og öðrum með því að skilgreina Bandaríkjamenn sem hugsanlegan óvin.

Einn Íslendingur hefur vakið heimsathygli fyrir skrif sín um Grænlandsmálið: Páll Vilhjálmsson aðalbloggari landsmanna og skal hann hafa bæði þakkir og heiður fyrir.

Skaðmenntaða fólkið á Íslandi heldur áfram að skaða fólkið í kringum sig. Íslenska réttarfarskerfið hefur svipt Alexandre Roche forræði yfir eigin syni vegna deilna við móðurina sem vill transvæða 10 ára gamlan son þeirra og breyta í stelpu. Sér til halds hafði dómstóllinn Samtökin 78 sem þola ekki að kynin eru bara tvö og reyna að hatursvæða alla heilbrigða umræðu. Alexandre safnar fé svo hann geti áfrýjað til Landsréttar bæði á GoFundMe og einnig á bankareikning.

Loading 1 comment...