Drápstollur böðlanna í Íran

16 days ago
754

Karl Gunnarsson flugstjóri, búsettur í Kanada, á eiginkonu frá Íran sem á ættingja sína þar. Heyrið hann lýsa böðlum klerkaveldisins sem senda aftökusveitir á sjúkrahúsin til að drepa slasaða og særða. Síðan krefjast þeir 4 þúsund dollara gjalds af aðstandenum fyrir blýið sem þeir notuðu til að drepa viðkomandi. Annars hverfur lík ættingjans, sonarins, dótturinnar, eiginmannsins, föðursins í nafnlausa fjöldagröf helvítis í eyðimörkinni.

Karl býr í Kanada og nýlega fór forsætisráðherrann í opinbera heimsókn til Kína og opnaði á innflutning á 49 þúsund kínverskum rafbílum til Kanada. Engu er líkar en Carney sé í einkastríði við Trump, því núna ræðir Kanada um að kaupa Gripen þotur frá Svíþjóð í stað F35 frá Bandaríkjunum. Blöð kommúnistastjórnarinnar í Kína slefa og tala um stórsigur kínverskrar utanríkisstefnu.

Loading 1 comment...